26.12.2007 | 12:02
Barn oss fætt
Jólin eru haldin til að fagna fæðingu freslsarans. En í ár voru nú fæðingum fleirrifagnað. Það var nú einu sinni svo að Siggi minn á afmæli á aðfangadag. Svo í ár fæddist honum óvænt afmælisgjöf. Jóhanna frænka og Grétar áttu stúlkubarn á aðfangadag. Öllum að óvörum. Átti ekki að koma fyrr en 2 janúar. En þetta var flott afmælisgjöf handa
Sigga og hann var svaka ánægður. Þetta var mikil frétt þar sem það fæðast ekki stúlkubörn í þessa familíu.
Önnur gleðifrétt kom í morgun þegar Eydís systir og Þröstur eignuðust son. 2 í jólum barn. 18 marka drengur sem kom með spítti. Þetta var mikið ánægjulegt þar sem það er búið að bíða síðan 20 des þegar hann átti að koma, samkvæmt læknum, en alls ekki samkvæmt honum.
Því má segja að barn var oss fætt. Það verður mikið um afmælishald um jól hér eftir. Skemmmtileggggtttt.
Annars hafa jólin verið okkur friðsæl og hugguleg. Maður er í náttfötum langt fram yfir hádegi og fer svo í gönguferð til að geta torgað meira nóa konfekti og mat. Hér var þvílíkt magn af jólagjöfum og allir hæst ánægðir. Takk fyrir okkur til allra. Svo eru gestir að koma í mat, skartgripasalinn, víndílerinn og sonur þeirra. svo verður kannski singstar í kvöld og annað gaman. Best að fara að klæða sig svo maður geti tekið á móti fólki.
Gleðileg jól til allra sem lesa þetta og hafið friðsælan tíma með hvort öðru.
Um bloggið
belfast
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svei mér þá ef maður bara ekki gleymdi að senda jólameila í ár. Gleðileg jól dúllan mín og farsælt komandi ár. hver veit nema við hittumst á næsta ári. Væri ekki leiðinlegt. Er alltaf á leiðinni til þín en með mörgum ferðum á næsta ári , brúðkaupi og 40 + 60 + 60 afmæli verð ég víst að príorítera þær ferðir. En þú ert ávalt velkomin til mín.
Helga Dís (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.